Ráðgjafarsvið

Hjá ECIT er veitt margþætt ráðgjöf varðandi t.d. rekstraruppgjör, stofnun félaga, gerð viðskiptaáætlana, kaup og sölu fyrirtækja, fjárhagslega endurskipuagningu o.m.fl.

Hafa samband

Kaup og sala fyrirtækja

Við aðstoðum einstaklinga, félög og fyrirtæki við kaup, sölu eða sameiningu smárra og meðalstórra fyrirtækja.

Auk yfirsýnar og ráðgjafar önnumst við einnig alla verkstjórn í viðkomandi verkefnum. Má þar nefna undirbúning og upplýsingaöflun, greiningu tækifæra, útreikning mismunandi verðmata, uppsetningu á gögnum er varða kostgæfnisathuganir og umsjón með samningagerð.

Fjárhagsleg endurskipulagning

ECIT aðstoðar við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Í slíkum verkefnum vinnum við náið með stjórnendum til að meta stöðu fyrirtækisins á líðandi stundu, fara yfir rekstraráætlanir og aðstoða við uppbyggingu nýrra markmiða og leiða með tilheyrandi áætlanagerð sé þess þörf.

ECIT leggur mat á skuldabyrði fyrirtækja með tilliti til rekstrarhæfi og leggur fram hugmyndir um nýja fjárhagslega uppbyggingu. Sé þess óskað sér starfsfólk ECIT um samskipti og samningaviðræður við lánastofnanir og aðra lánadrottna.

Svör við Algengum Spurningum

Hvað felst í rekstrarráðgjöf ECIT?

Rekstrarráðgjöf ECIT felur í sér ráðgjöf um rekstraruppgjör, stofnun félaga, gerð viðskiptaáætlana, kaup og sölu fyrirtækja, fjárhagslega endurskipulagningu og margt fleira. Rekstrarráðgjöf er gjarnan sérsniðin að þörfum viðskiptavinarins svo við hvetjum þig til þess að leita til okkar ef þú ert með verkefni sem þú þarft hjálp með.

Hvernig getur rekstrarráðgjöf hjálpað fyrirtækinu mínu?

Með rekstrarráðgjöf frá ECIT færð þú faglega ráðgjöf sem getur hjálpað þér að bæta reksturinn, auka hagkvæmni og ná betur settum markmiðum. Við aðstoðum við að greina tækifæri og takast á við áskoranir.

Hvað kostar rekstrarráðgjöf?

Kostnaður við rekstrarráðgjöf fer eftir umfangi og flækjustigi verkefnisins. Við bjóðum upp á sérsniðnar lausnir sem taka mið af þörfum hvers fyrirtækis og veitum alltaf verðtilboð áður en þjónustan hefst. Hafðu samband við okkur í síma 414-3200 eða sendu okkur línu á virtus@virtus.is og fáðu tilboð í þá þjónustu sem hentar.

Hvernig hef ég samskipti við ECIT varðandi rekstrarráðgjöf?

Viðskiptavinir okkar eiga allir sinn tengilið. Þú getur haft samband við okkur í gegnum síma, tölvupóst eða með því að bóka fund í gegnum vefsíðuna okkar. Við erum ávallt til taks til að svara spurningum og veita ráðgjöf. Ef þú hefur áhuga á að koma í viðskipti getur þú haft samband við okkur í síma 414-3200 eða sendu okkur línu á virtus@virtus.is og fengið frekari upplýsingar og tilboð í þá þjónustu sem hentar.

 

Getur ECIT aðstoðað við kaup og sölu fyrirtækja?

Já, við aðstoðum einstaklinga, félög og fyrirtæki við kaup, sölu eða sameiningu fyrirtækja. Við sjáum um alla verkstjórn og ráðgjöf í tengslum við slík verkefni.

Hvernig hjálpar ECIT við fjárhagslega endurskipulagningu?

Við aðstoðum við mat á stöðu fyrirtækisins, gerð nýrra markmiða og áætlana, samskipti við lánastofnanir og aðra lánadrottna, og veitum ráðgjöf um nýja fjárhagslega uppbyggingu.

Hvað er innifalið í viðskiptaáætlunargerð?
Viðskiptaáætlunargerð felur í sér greiningu markaðarins, skilgreiningu á markmiðum, gerð fjárhagsáætlana og útgáfu áætlunarinnar. Við tryggjum að áætlunin sé raunsæjar og framkvæmanleg. Allar áætlanir eru unnar í nánu samstarfi við viðskiptavini.
Getur ECIT aðstoðað við stofnun félaga?
Já, við veitum ráðgjöf og aðstoð við stofnun félaga, þar með talið gerð stofnskjala, skráningu hjá Ríkisskattstjóra og ráðgjöf um bestu rekstrarform.
Tryggir rekstrarráðgjöf ECIT fullan trúnað?

Já, öryggi og trúnaður eru okkar helstu áhersluatriði. Við meðhöndlum allar upplýsingar með fullum trúnaði og fylgjum ströngum verklagsreglum til að tryggja öryggi gagna. Öll meðferð upplýsinga er GDPR vottuð.

Hvernig getur ég bókað rekstrarráðgjöf hjá ECIT?
Þú getur bókað rekstrarráðgjöf hjá okkur í gegnum vefsíðuna okkar, með því að hafa samband í gegnum síma 412 3200 eða tölvupóst virtus@virtus.is. Við erum ávallt tilbúin að aðstoða og veita ráðgjöf.

Ertu forvitinn um hvað við getum boðið þér?

Vinsamlegast óska eftir tilboði