Við hjá ECIT Virtus erum ánægð að tilkynna að við höfum tekið yfir bókhalds- og launaþjónustu PwC í Reykjavík. Þessi yfirtaka er mikilvægur liður í stefnu okkar um að efla starfsemina og bæta við þjónustuframboðið okkar til að mæta sívaxandi þörfum viðskiptavina okkar.
Með þessu skrefi mun bókhalds- og launaþjónustan, sem áður var rekin af PwC, nú vera hluti af ECIT Virtus. Þetta mun tryggja áframhaldandi gæði þjónustu og gefa viðskiptavinum okkar aðgang að aukinni sérfræðiþekkingu. Starfsliðið innan ECIT Virtus telur nú yfir 30 sérfræðinga með víðtæka reynslu á sviði bókhalds, launavinnslu og skattaráðgjafar, sem gerir okkur betur í stakk búin til að þjónusta fjölbreyttan hóp viðskiptavina.
Við hjá ECIT Virtus höfum sett okkur það markmið að vaxa bæði innra með okkur og út á við, þar til stærðarhagkvæmni hefur verið hámörkuð á íslenskum markaði. Yfirtaka á bókhalds- og launaþjónustu PwC er stórt skref í þá átt og undirstrikar skuldbindingu okkar til að tryggja gæði og fjölbreytileika í fjármálaþjónustu.
Þessi þróun kemur í kjölfar samruna við Húnabókhald fyrr á þessu ári og markar áframhaldandi vöxt okkar á íslenskum markaði. Við hlökkum til að veita enn betri þjónustu fyrir okkar viðskiptavini og tryggja að þeir fái þá sérfræðiþekkingu og stuðning sem þeir þurfa til að ná árangri.
ECIT Virtus ehf. er dótturfélag norska fjármálafyrirtækisins ECIT AS, sem hefur um 2.600 starfsmenn á yfir hundrað vinnustöðum í tíu löndum. Auk bókhalds og launavinnslu veitir ECIT AS víðtæka ráðgjöf á sviði upplýsingatækni og viðskiptalausna. Félagið er skráð í kauphöllinni í Osló og hefur stöðugt aukið umsvif sín, meðal annars með kaupum á 51% hlut í Virtus fjármálum í mars 2023.
ECIT Virtus þjónar nú yfir 600 viðskiptavinum í fjármálatengdum verkefnum og áætluð velta félagsins á þessu ári er um 500 milljónir króna. Með þessum nýju kaupum er ECIT Virtus betur í stakk búið en nokkru sinni fyrr til að mæta þörfum íslenskra fyrirtækja og einstaklinga fyrir faglega og áreiðanlega fjármálaþjónustu.