Ársreikningar og skattframtöl
Við veitum faglega og áreiðanlega þjónustu við gerð ársreikninga og skattaframtala fyrir einstaklinga, fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum, sem og félög. Með áratuga reynslu tryggjum við að öll fjármálagögn séu rétt unnin og að skattaskil séu í samræmi við gildandi reglur. Við leggjum áherslu á eftirfarandi þjónustuþætti:
Ársreikningar
Við sjáum um gerð og uppsetningu ársreikninga í samræmi við lög og reikningsskilastaðla. Hvort sem um ræðir lítil, meðalstór eða stór fyrirtæki, tryggjum við að ársreikningurinn gefi skýra mynd af fjárhagsstöðu og rekstri.
Skattaframtöl einstaklinga
Við aðstoðum einstaklinga við skattaframtöl og tryggjum að öll gögn séu rétt unnin til að nýta frádrætti og mögulegar skattaívilnanir. Við vinnum með flókin framtöl, þar á meðal fyrir sjálfstætt starfandi einstaklinga og þá sem hafa tekjur frá fleiri en einum aðila.
Skattframtöl fyrirtækja og félaga
Við sérhæfum okkur í gerð skattframtala fyrir fyrirtæki og félög, tryggjum að öll skattaleg atriði séu rétt skráð og hámarka hagkvæmni í skattlagningu innan ramma laganna. Við veitum einnig ráðgjöf um skattalega hagræðingu og nýtingu skattareglna til að lágmarka skattaálag.
Ráðgjöf í tengslum við ársreikninga og skatta
Við veitum ráðgjöf um skattamál og ársreikninga, hjálpum fyrirtækjum að greina og nýta skattalega möguleika, draga úr áhættu og tryggja skilvirk skattaskil. Hvort sem um er að ræða breytt skattalög, endurskipulagningu eða framtíðarskipulagningu, erum við til staðar til að veita skýrar og markvissar lausnir.
Samskipti við skattyfirvöld
Við tökum að okkur samskipti við skattyfirvöld, hvort sem um ræðir fyrirspurnir, leiðréttingar eða umsóknir um undanþágur. Með okkar aðstoð geta viðskiptavinir einbeitt sér að rekstri án þess að þurfa að hafa áhyggjur af flóknum skattamálum.
Við tryggjum að öll skattaskil og ársreikningar séu unnin faglega, nákvæmlega og í samræmi við lög og reglugerðir – þannig færðu fulla yfirsýn yfir þína skattskyldu og fjárhagsstöðu.
Algengar spurningar og svör um ársreikninga og skattaframtöl
1. Hvenær þarf að skila inn ársreikningi?
2. Er skylda að skila inn ársreikningi?
Já, öll fyrirtæki með bókhaldsskyldu þurfa að skila inn ársreikningi. Fyrirtæki sem eru skráð í ársreikningaskrá ber að skila ársreikningi til RSK ár hvert.
3. Hver þarf að skila skattaframtali?
4. Hvernig er skattframtal fyrirtækja unnið?
5. Hvaða gögn þarf að senda fyrir skattframtalið?
6. Get ég fengið leiðbeiningar um hvernig á að hámarka frádrátt í skattframtali?
7. Hvað gerist ef ég skila ekki skattframtali á réttum tíma?
8. Hver er munurinn á rekstrarreikningi og skattframtali?
9. Býður ECIT upp á aðstoð við samskipti við skattyfirvöld?
Af hverju ætti ég að fá faglega aðstoð við skattframtal og ársreikning?
Ertu forvitinn um hvað við getum boðið þér?
Vinsamlegast óska eftir tilboði
Hvað felst í rekstrarráðgjöf ECIT?
Rekstrarráðgjöf ECIT felur í sér ráðgjöf um rekstraruppgjör, stofnun félaga, gerð viðskiptaáætlana, kaup og sölu fyrirtækja, fjárhagslega endurskipulagningu og margt fleira. Rekstrarráðgjöf er gjarnan sérsniðin að þörfum viðskiptavinarins svo við hvetjum þig til þess að leita til okkar ef þú ert með verkefni sem þú þarft hjálp með.
Hvernig getur rekstrarráðgjöf hjálpað fyrirtækinu mínu?
Með rekstrarráðgjöf frá ECIT færð þú faglega ráðgjöf sem getur hjálpað þér að bæta reksturinn, auka hagkvæmni og ná betur settum markmiðum. Við aðstoðum við að greina tækifæri og takast á við áskoranir.
Hvað kostar rekstrarráðgjöf?
Kostnaður við rekstrarráðgjöf fer eftir umfangi og flækjustigi verkefnisins. Við bjóðum upp á sérsniðnar lausnir sem taka mið af þörfum hvers fyrirtækis og gerum verðtilboð sé þess óskað.
Hvernig hef ég samskipti við ECIT varðandi rekstrarráðgjöf?
Viðskiptavinir okkar eiga allir sinn tengilið. Þú getur haft samband við okkur í gegnum síma, tölvupóst eða með því að bóka fund í gegnum vefsíðuna okkar. Við erum ávallt til taks til að svara spurningum og veita ráðgjöf. Ef þú hefur áhuga á að koma í viðskipti getur þú haft samband við okkur til þess að fá frekari upplýsingar og eða tilboð í þá þjónustu sem hentar.
Getur ECIT aðstoðað við kaup og sölu fyrirtækja?
Já, við aðstoðum einstaklinga, félög og fyrirtæki við kaup, sölu eða sameiningu fyrirtækja. Við sjáum um alla verkstjórn og ráðgjöf í tengslum við slík verkefni.
Hvernig hjálpar ECIT við fjárhagslega endurskipulagningu?
Við aðstoðum við mat á stöðu fyrirtækisins, gerð nýrra markmiða og áætlana, samskipti við lánastofnanir og aðra lánadrottna, og veitum ráðgjöf um nýja fjárhagslega uppbyggingu.
Hvað er innifalið í viðskiptaáætlunargerð?
Viðskiptaáætlunargerð felur m.a. í sér skilgreiningu á markmiðum og gerð fjárhagsáætlana. Við tryggjum að áætlunin sé raunsæjar og framkvæmanlegar. Allar vinna við áætlanir er unnin í nánu samstarfi við viðskiptavini hverju sinni.
Getur ECIT aðstoðað við stofnun félaga?
Já, við veitum ráðgjöf við val á rekstarformi, aðstoðum við stofnun félaga, þar með talið gerð stofnskjala, skráningu hjá Fyrirtækjaskrá Skattsins og annað sem ef við á.
Tryggir rekstrarráðgjöf ECIT fullan trúnað?
Já, öryggi og trúnaður eru okkar helstu áhersluatriði. Við meðhöndlum allar upplýsingar með fullum trúnaði og fylgjum ströngum verklagsreglum til að tryggja öryggi gagna. Öll meðferð upplýsinga er GDPR vottuð.
Hvernig getur ég bókað rekstrarráðgjöf hjá ECIT?
Þú getur bókað rekstrarráðgjöf hjá okkur í gegnum vefsíðuna okkar, með því að hafa samband í gegnum síma 419 7200 eða tölvupóst ecit@ecit.is. Við erum ávallt tilbúin að aðstoða og veita ráðgjöf.