Stórt skref framávið fyrir fjármálaþjónustu á Íslandi
Það er okkur ánægja að tilkynna að norska fjármálafyrirtækið ECIT AS hefur gengið frá samningi um kaup á helmingshlut í Virtus fjármálum ehf. Samkvæmt þessu samkomulagi mun Virtus, sem hefur verið leiðandi fyrirtæki í bókhalds-, launa- og fjármálaráðgjöf hér á landi, nú starfa undir nafninu ECIT Virtus. Þessi nýja sameining mun ekki aðeins styrkja stöðu okkar á markaðnum heldur einnig opna ný tækifæri fyrir núverandi og nýja viðskiptavini.
Virtus hefur verið í fararbroddi í fjármálaþjónustu á Íslandi síðan 2001 og hefur unnið að fjölmörgum fjármálatengdum verkefnum fyrir einstaklinga, félög, fyrirtæki og stofnanir. Með traustu samstarfi við viðskiptavini okkar, sem bæði eru innlend og erlend, leggjum við áherslu á að skilja þarfir þeirra til hlítar og tryggja að þær séu uppfylltar á sem bestan hátt. Virtus stendur fyrir gæði, trúnað og persónulega þjónustu – gildi sem við munum halda áfram að fylgja undir merkjum ECIT Virtus.
Samningurinn við ECIT er stórt skref fyrir Virtus, þar sem við munum nú verða hluti af stærri alþjóðlegri heild. ECIT er skráð félag í norsku kauphöllinni með yfir 2.300 starfsmenn í tíu löndum, og með þessu samkomulagi kemur ECIT inn á íslenskan markað í fyrsta sinn. Kaupin á hlutnum í Virtus eru að meirihluta til fjármögnuð með reiðufé en einnig með hlutabréfum í ECIT AS.
Peter Lauring, forstjóri ECIT, segir:
„Við erum afar ánægð með þessa innkomu og bjóðum bæði viðskiptavini og starfsfólk velkomið í áframhaldandi samstarf undir merkjum ECIT Virtus“
Hjá Virtus starfa um 20 manns í ríflega 15 stöðugildum og þjónustar félagið launareikninga og tengda þjónustu fyrir tæplega fjögur þúsund launamenn í hverjum mánuði. Tekjur Virtus námu 220 milljónum króna árið 2022 og hagnaður félagsins var 3,1 milljón króna árið 2021.
Með þessari nýju sameiningu er Virtus betur í stakk búið en nokkru sinni fyrr til að þjónusta viðskiptavini sína. Við hlökkum til að halda áfram að veita framúrskarandi fjármálaþjónustu og styðja við vöxt og velgengni viðskiptavina okkar – bæði núverandi og nýrra – undir merkjum ECIT Virtus.