ECIT á Íslandi hefur tekið í notkun nýja þjónustu í samstarfi við Primis sem veitir fyrirtækjum möguleika á að fá reikninga greidda strax – á einfaldan, rafrænan og sveigjanlegan hátt. Þjónustan er hluti af þeirri stefnu ECIT að bjóða lausnir sem styðja við daglegan rekstur viðskiptavina okkar og bæta lausafjárstýringu með nútímatækni.
Viðskiptavinir sem nota reikningaútgáfu ECIT á Íslandi (áður Nota.is) geta nú hakað við fjármögnunarvalmöguleika þegar reikningur er stofnaður – og reikningurinn er þá sjálfkrafa sendur í fjármögnun hjá Primis. Fjármagnið berst strax þegar tilboð hefur verið samþykkt – engin pappírsvinna, engar tafir.
Hvernig virkar þetta?
- Þú færð aðgang að þjónustuvef Primis.
- Velur þá reikninga sem þú vilt fá greidda strax.
- Þú færð verðtilboð í krónum samdægurs.
- Þú samþykkir tilboðið og færð greiðslu samstundis.
- Þegar greiðandi greiðir reikninginn fer sjálfvirkt uppgjör í gegnum kerfið.
Af hverju ætti ég að nota þessa þjónustu?
- Þú færð peninginn strax – án þess að bíða eftir gjalddaga.
- Þú getur nýtt tímabundin afsláttarkjör eða brugðist við skyndilegum kostnaði.
- Engin þörf á viðbótarveðum eða tryggingum.
- Öll þjónustan fer fram rafrænt og án handavinnu.
- Engin mánaðargjöld – aðeins föst þóknun fyrir hverja fjármögnun.
Kostnaður og skilmálar
Þóknunin er að jafnaði á bilinu 2–5% eftir lengd fjármögnunar og niðurstöðu sjálfvirks áhættumats. Enginn fastur kostnaður eða aukagjöld bætast við. Viðskiptavinur fær alltaf tilboð í föstum krónum sem hann samþykkir áður en greiðsla fer fram.
Sveigjanleiki í rekstri
Ef reikningur er ekki greiddur á gjalddaga heldur Primis áfram að fjármagna hann á sömu kjörum. Viðskiptavinur getur líka hvenær sem er greitt upp eða lagt fram nýja reikninga í staðinn.
ECIT vinnur stöðugt að því að bæta þjónustu sína og veita lausnir sem styðja við rekstur íslenskra fyrirtækja. Samstarfið við Primis er skref í þá átt og við hvetjum alla áhugasama til að hafa samband við ráðgjafa ECIT til að hefja notkun eða fá nánari upplýsingar.